Færsluflokkur: Spaugilegt

Porsche ekki bara góður bíll

Stórkostlegt að taka á þessum vogunarsjóðum og þeirra skortsölu. Hef aldrei skilið hrifningu vissra manna á þessu fyrirbæri, sem engin lög virðast ná yfir á Íslandi og Kauphöllin birtir ekki einu sinni upplýsingar um.

Hver tók skortstöðu á krónunni? Mér skilst að George Soros sé fullur iðrunar eftir að hann réðist á pundið og eyðilagði lífeyrissjóð milljóna manna í Bretlandi.

Þetta eru dólgar og þá á ekki að verðlauna. Nú situr George Soros í siðanefnd um viðskipti. kunnið þið annan?

Er ekki rétt að skilanefndirnar birti lista yfir stærstu skortstöðu aðilana í fallinu?


mbl.is Fréttaskýring: Skortsalar í sárum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisútvarpið

Þeir hljóta að segja upp fólki eins og aðrir. Þeir hljóta að lækka laun eins og aðrir hafa þurft að gera.

Nú ef ekki er þá ef til vill einhver ábyrgur stjórnmálamaður sem vekur aðra til þess? Það er ekki hægt að láta bara einkageirann taka skellinn!


mbl.is Yfir 20 manns sagt upp hjá 365 og laun lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

400 punktar

Er það rétt að þetta lán sé með 400 punkta álagi? Er það aðstoð. Ef stýrivextir er 1% Þá hefði maður talið að tvöföldun í 2% væri meir en nóg. 5% er gráðugt. enda hefur vinna þessara manna hvergi gengið upp svo ég viti. Gaman að heyra ef einhver er með IMF "success story".
mbl.is Stjórn IMF fjallar um Ísland 5. nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið Opinbera

Er ekki einkennilegt að það eru engar uppsagnir hjá ríkinu? Ekki hafa laun verið lækkuð þar. Furðulegt hvernig að ábyrgðarleysi stjórnmálamanna heldur áfram. Þeir kunna ekki að skammast sín.
mbl.is Nóatún segir upp og hagræðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launalækkanir opinberra starfsmanna

Það sætir furðu að heyra ekkert um uppsagnir hjá hinu opinbera né um launalækkanir hjá ríkinu.

Ætla þessir stjórnmálamenn sem komu okkur í þennan vanda ekki að lækka laun sín? Kunna þeir ekki að skammast sín? Þeir eru ábyrgir fyrir því að setja ekki lög sem gátu varið okkur betur, ábyrgir fyrir því að hafa stofnanir sem ekki sinna hlutverki sínu, o.s.frv.


mbl.is Uppsagnir hjá Klæðningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bótasjóðir

Gott að FME skoðar það sem þjóðin er búin að vita svo mánuðum skiptir að herrarnir hafa litið á þessa sjóði sem eigið fé. Hef verið hugsi þegar greitt tryggingariðgjöld hvort maður er yfirleitt tryggður.

 


mbl.is FME skoðar tryggingafélögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tori

Höfundur

Tori
Tori
Íslendingur.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband