Færsluflokkur: Spaugilegt
30.10.2008 | 08:54
Bara ef
![]() |
Fimmtungi fleiri Bretar koma til Íslands en í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 00:00
Eina vonin
Fyrir Geir Haarde og samfylkinguna er eina vonin að þetta mál vinnist. Hvort sem það er fyrir rétti eða með samningum. Hann og stjórnarliðar hans eru búnir að vera í stjórnmálum nema árangur náist hér. Breska stjórnin er sjálfri sér til skammar en nær jú mun meiri athygli með sinn málstað en þjóð sem er 1/200 af fólksfjölda Bretlands.
Hér þarf að sýna fulla hörku. Megi Ísland vinna!
![]() |
Þekkt lögmannsstofa vinnur fyrir Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2008 | 20:07
Lygar
Hér ásaka menn hvorn annan um lygar. Það hlýtur að koma í ljós hver hefur rétt fyrir sér. Síðan er hin hliðin hver stendur við orð sín? Ætlaði ekki einhver að taka að sér ábyrgðir sem gætu fallið á Eimskip?
![]() |
Björgólfur segist standa við ummæli sín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2008 | 00:47
Natosinni
Nato hefur þjónað tilgangi sínum og nú þarf að spara.Segjum okkur úr Nato strax. Hvað Bretana varðar þá geta stjórnmálamenn ekki haldið áfram að vera það dómgreindarlausir að samþykkja komu þeirra hingað.Þá held ég að sjóði uppúr.
Það er komið nóg af sofandagangi stjórnmálamannanna. Þeir komast aldrei frá aðgerðarleysi sínu til að koma í veg fyrir hræðilegustu mistök Íslandssögunar.
Fyrrum Natosinni.
![]() |
Móðgun ef Bretarnir koma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2008 | 16:14
Hárrétt
Það er hárrétt hjá Illuga að stjórnmálamenn eiga ekki að sitja í stjórn sjóða. Sjóðir eiga helst að vera í eignastýringarfyrirtæki sem sérhæfir sig og hefur ekki aðra hagsmuni en að ávaxta viðkomandi sjóð. Það er ljóst að bankarnir hafa misnotað þessa sjóði og lagt þar allskyns rusli tímabundið eða varanlega. Hversvegna eiga lífeyrissjóðirnir ekki miklu meira af ríkisskuldabréfum?
Illugi Gunnarsson er efnilegur þingmaður. Hverjir fleiri sátu í slíkum stjórnum eða sitja enn?
![]() |
Óheppilegt að þingmenn stýri sjóðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.10.2008 | 13:23
Vilhjálmur
![]() |
Vaxtahækkun sennileg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.10.2008 | 13:20
Spilakassinn
![]() |
Krónan stærsta vandamálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2008 | 23:55
Hver
Hver kom landinu á hausinn? Stjórnmálamenn. auðmenn eða almenningur? Á að ala á þrælsóttanum?
Hvernig má það vera að við erum að súpa seyðið af gjörðum þeirra sem ekkert gerðu en vissu hve staða Landsbankans var alvarleg. Þeir höfðu fleiri mánuði en gerðu ekkert. Hvernig á að treysta þeim? Stjórnmálamönnum. embættismönnum. eigendum og stjórnendum.
Eru drottningarviðtöl lausnin? Þetta er sorgleg staða. Siðlaust ástand.
![]() |
Geir skorar á íslenska auðmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2008 | 21:52
Ábyrgð hverra?
Það kom fram hjá Björgvini bankamálaráðherra að hann hafi vitað um Icesave reikningana og vandamálin þeim tengdum fyrir rúmu ári! Stjórnmálamenn okkar hafa ekki sinnt skyldum sínum. embættismenn ekki heldur og eigendur LÍ og stjórnendur vaðið áfram af ábyrgðarleysi.
Nú sjá Bretar leik á borði. þeir eru að eiga við aula. Ef niðurstaðan er sú að þjóðin verður hreinlega eyðilögð vegna yfirgangs Breta og aulagangs manna sem eru nefndir hér að ofan. þá er ég sammála Steingrími Sigfússyni að það verður uppreisn!
Bretar mega vita það að það mun aldrei verða friður hér gagnvart þessum mönnum né þeim.
![]() |
Viðræðum við Breta lokið í bili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2008 | 01:46
Fyrirhyggja.
Ert þú næstur?Á reykingafólk rétt á heilbrigðisþjónustu? Eiga offitusjúklingar rétt á "Easy boy". Það er hárrétt að þeir sem hafa sýnt fyrirhyggju njóti þess að draga hina að landi og líði vel með það!
Sammála frysta erlend lán og afnema verðtryggingu. Tryggjum búsetu og framtíð okkar. You win some and you loose some................................
![]() |
Bankar frysti myntkörfulán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tori
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 507
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar