Færsluflokkur: Spaugilegt
10.10.2008 | 17:29
Vonbrigði að Geir sendi ekki Breska sendiherrann strax úr landi
Það er nokkuð ljóst að Gordon Brúni hefur skaðað samskipti Íslendinga og Breta í mjög langan tíma. Geir á að senda sendiherra Breta til síns heimalands. Nú eigum við ekki að vera að hika. Við eigum að vinna með Rússum og Kanadamönnum að lausn vandamála hér. Og virkilega að passa okkur á "The economical hit man" þ.e. IMF. Loka sendiráðum Íslendinga á Norðurlöndum og segja okkur úr Nato til að spara.
![]() |
Brown gekk allt of langt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2008 | 11:18
Pundið hans Gordons Brúna
10.10.2008 | 10:43
Gott þeir sækji stefnuna
Nú þegar sendinefnd Gordons Brúna kemur til Íslands.Er rétt að þeim verði birt stefna á flugvellinum og snúið við. Þessir háu herrar verða að skilja það að þeirra skilgreining á okkur Íslendingum er gagnkvæm og við erum ábyrg fyrir því að hleypa ekki hryðjuverkamönnum inná Schengen svæðið birtist þeir við landamæri okkar.
Ef forsætisráðherra vor væri "proactive" myndi hann drífa í þessu. Nú þarf að spara og rétt að byrja með því að segja okkur úr Nato enda hefur þessi félagsskapur þjónað sínum tilgangi. Harri verður að biðja Rússa afsökunar á því að kalla þá "nýja" vini. Þó við höfum ekki verið vinveittir sovjet herrunum þá veit ég ekki annað en að Rússar hafi alltaf verið vinir okkar og það í reynd sem er meira en sagt verður um svokallaða vini.
![]() |
Sendinefnd Breta væntanleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.10.2008 | 10:31
Rússar eru vinir okkar..
Hvað á okkar "reactive" en ekki "proactive" forsætisráðherra við þegar hann talar um "nýja" vini?
Hversvegna eru menn í þessu sovjet tali. Rússland er stórauðugt land að stíga sín fyrstu skref sem lýðræðisþjóðfélag. Ég tel það mjög gott ef þeir sýna okkur áhuga og samvinnu. Því skyldi annað búa undir en hreinn viðskiptaáhugi. Er eitthvað verra að þeir fjárfesti hér en einhverjir aðrir.
Það er alveg ljóst að Gordon Brúni hefur vakið mig og fleiri til umhugsunar og þakka ég honum það.
Hugsunin er þessi, við skulum vera hreinskilin, við eigum enga samleið því miður með Bretum lengur, skilgreining þeirra á okkur er gagnkvæm.Ég vil úr Nato með Ísland enda gamlt rykugt fyrirbæri, sem hefur þjónað sýnum tilgangi.
![]() |
Hvað vilja Rússar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Tori
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar