Færsluflokkur: Spaugilegt

Er þetta sigur? Nauðungarsamningur!

Hver verður dreginn til ábyrgðar í þessu máli? Hvernig má það vera að íslenskt fyrirtæki erlendis geti sent skattgreiðendum reikninginn? Er ekki rétt að fara að frysta eignir hér heima? Á hvaða gengi er evran í þessum nauðungarsamningi? Hvað hafa embættismenn þjóðarinnar og stjórnmálamenn skrifað mundir í gegnum tíðina? Hvaða fleiri reikninga á þjóðin von á vegna afglapa stjórnmálamanna og embættismanna, sem opnuðu þessa leið?
mbl.is Samkomulag náðist við Holland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei

Höfum ekkert með aðstoð Norðmanna að gera. Þeir hafa notað öll tækifæri til að svíða af okkur veiðiheimildir. Hvernig er sagan með Elkem í Hvalfirði o.s.frv.

Það verður auðveldara fyrir Íslendinga að semja með Rússum um auðlindir hafsins sem til greina koma en Norðmönnum. Það er alveg ljóst. Það er hagur Rússa að spila með okkur en ekki Norðmönnum!


mbl.is Norðmenn óttast ítök Rússa hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur og IMF

Það má alltaf láta sig dreyma, en þessir menn (IMF) eru grjótharðir og ætla sér að trjóna hér það sem við eigum eftir lifað. Ekki vera barnalegur Össur. Reynum að ná hagstæðum samningum við Rússa. Með aðstoð frá IMF værum við í skuldafeni um aldur og ævi.Þessir menn kunna þetta. Gordon Brúnn spilaði vel fyrir IMF svo þeir ættu auðveldara með að ná öllu hér á sitt vald.
mbl.is Ísland á að sækja um stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er byrjað..........

Nákvæmlega eins og við var að búast af IMF. Fyrst á að gera upp við Breta, ekki minnst á að þeir geri upp við okkur  (vegna Kaupþings London). 

Nei við skulum láta okkur nægja lán frá Rússum og ef ekki um semst þá vinna okkur út úr þessu þó það taki lengri tíma. IMF er nákvæmlega eins og NATO í þorskastríðunum forðum þegar Bretar lentu flugvélum sínum á varnarsvæðinu í Keflavík þegar þeir voru að ögra okkur og reyna að hirða fiskimiðin sem væru ónýt eins og þeirra eigin ef þeim hefði tekist það.

Við skulum vera þess minnug að við erum lítil þjóð og afgangsstærð hvað þessa háu herra varðar.Hvernig haldið þið að farið yrði með okkur ef við væru í Evrópusambandinu? Vá Guð hjálpi okkur.

Fullt sjálfstæði Íslands er það sem þarf að standa vörð um. Ég er hræddur við morfín sprautu IMF þar sem Bretar ráða meiru en t.d. við. Það er bara tvær leiðir, önnur er að ná hagstæðum samningum við Rússa um lán, hin að vinna okkur útúr þessu sjálf þó lengur taki.

 

 


mbl.is Lausn á deilum forsenda IMF-aðstoðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilið okkur Kaupþing!

Það er mjög sérstakt að Brúnn sendir hingað sendinefnd til að fá skaða sem HANN olli borgaðan. Bretar eiga að skammast sín, biðja þjóðina afsökunar og skila okkur Kaupþingi. Um leið myndu þeir minnka eigin skaða. Gera okkur kleift að komast á lappirnar aftur án þess að verða enn skuldugri. En við verðum það líklega óhjákvæmilega vegna IceSave Landsbankans eða hvað? Kaupþing Singer & Friedlander var breskur banki í eigu Íslendinga settur á hausinn af Gordon Brúna og vona ég að íslenska sendinefndin hafi rétt þeirri bresku stefnuna. Nú duga engin vettlingatök!
mbl.is Viðræður við sendinefnd Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ég vera með?

Eftir aulagang "Nato vina" okkar. Þá verð ég að segja úr því sem komið er að við eigum að þiggja lán af Rússum einum og semja við þá ef það býðst á ásættanlegum kjörum. IMF getur átt sig, ef einhvern tíma þeir vildu hjálpa þá var það ekki fyrr en hræðsla greip um sig meðal þessara aula. Hefðu þeir nokkru sinni boðið hjálp nema vegna boðs Rússa? Högg Gordons Brúna mun verða hrokaguggnum þeim eftirminnalegt!

Er ekki rétt að við virkjum meira jafnvægi heimsins? Gerum við það ekki með nánari tengslum við Rússa? Hófst þessi undirmálskrísa og það sem hefur fylgt ekki hjá Bandaríkjamönnum. Skuldum við þessum Nato bandamönnum okkar eitthvað? Nato hefur lokið starfi sínu hvað Ísland varðar. Bless!


mbl.is Rússar og IMF sameinist um lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöndum saman

Ekki eyða púðri innbyrðis. Mótmælum við breska sendiráðið. Þeir fóru langt yfir mörkin með dónahegðun sinni!
mbl.is Mótmæli á Arnarhóli vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú getum við hjálpað Bretum að losna við Brún

Maðurinn er klárlega hrokagikkur og Bretum til skammar, en greinin sýnir að enn eru of margir sem ekki gera sér grein fyrir hryðjuverkum Brúns. Stefnum Bretum strax. Fólk hefði frekar átt að mótmæla utan sendiráðs Breta en við Seðlabankann.

Það verður betra líf hér með lán frá Rússum en IMF. Rússar eru menningarþjóð eins og allir vita í bókmenntum, myndlist, tónlist o.s.frv. Ekki vélmenni frá IMF.


mbl.is „Sparkað í liggjandi (Ís)land"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Economical Hit Man

Lesið bókina " The Economical Hit Man" (sannsöguleg) áður en þetta skref er tekið!
mbl.is Japanar vilja að IMF byrji hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárrétt hjá Guðna

Það er deginum ljósara að ríkið á að undirbúa málaferli og það straxd. Þetta þolir enga bið og hver veit kannski hægt að bjarga verðmætum ef keyrt af stað STRAX. Áfram Guðni!
mbl.is Guðni Ágústsson: Kærum Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tori

Höfundur

Tori
Tori
Íslendingur.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband