16.12.2008 | 21:20
Vandamálin
Lítið gengur eða rekur í að taka á málunum. Hver eru vandamálin?
1. Gjaldmiðilskrísa
Það er deginum ljósara að besta leiðin strax er að taka upp Bandaríkjadollar. Þar hangir ekkert annað á spýtunni. ESB aðild er ekki lokuð úti né Evran seinna ef svo ber undir. Flest fyrirtæki á Íslandi sem gera upp í erlendum gjaldmiðli gera upp í Bandaríkjadölum.
2. "Trausts krísa"
Hvernig leysum við þessa krísu svo hægt sé að fara að byggja okkur upp og útúr krísunni? Það verður að upplýsa um viðskipti með hlutabréf LÍ rétt fyrir lokun. Millifærslur Kaupþings rétt fyrir lokun. Upplýsa um viðskipti stjórnarliða og maka þeirra undanfarnar vikur. Það er ekki hægt að ætlast til þess að fólk taki þessari þögn endalaust.Stjórnmálamenn verða að sýna kjósendum að þeir virði þá og þeir haldi ekki að kjósendur séu allir með gullfiskaminni.
3. Hrun efnahagslífsins = Krísan
Þetta mun rétta hratt við sér ef gengið er í að leysa gjaldmiðils krísuna. Jafnfram þarf að drífa í að fara í mál við Breta. Halda að okkur öllum greiðslum til þessara manna þar til dómstólar hafa sagt sitt.
4. Stjórnmálamannakrísan
Það sér það hver maður, sem horfir á leikrit Alþingis að það þarf að skipta út í brúnni hjá öllum flokkum. Þessir menn (kven og karl) sváfu allir á verðinum.
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Um bloggið
Tori
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.