Færsluflokkur: Spaugilegt

Þórunn og bæjarstjórinn.

Þessir aðilar þurfa að lesa fréttina. Umhverfisráðherra, sem enn á eftir að taka út þroska. Og bæjarstjórinn í Hafnafirði. Dæmi um slappa stjórnmálamenn.
mbl.is „Það er enga vinnu að hafa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eruð þið börn?

Það er ljóst að Árni er búinn að átta sig á raunveruleikanum hvað IMF varðar og þrýstinginn frá ESB þjóðum.

Við eigum engra kosta völ nema að reyna að vinna okkur útúr þessu sjálf. Það verður erfiðar og tekur lengri tíma en svona er þetta, við eigum ekkert bakland!

Meira segja lítur út fyrir að Rússum hafi verið hótað ef þeir lánuðu okkur til að koma okkur útúr mestu vandræðunum!

Eru menn að átta sig á hættunni sem okkur steðjar af ESB? Nú sýna þeir okkur sitt rétta andlit, kaldir embættismenn og stjórnmálamenn sem eru aular.

Áfram Ísland!


mbl.is Uggandi um afgreiðslu umsóknar hjá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt mál

Þetta má ekki taka mikinn tíma. Hvernig væri að byrja á því að yfirheyra þessa aðila sem að málinu koma. Það er forsvarsmenn bankana og aðal eigendur þeirra. Eða vita menn ekki hvað á að spyrja um? Vita menn ekki hvort eða hvernig þeir hafa gerst brotlegir?

Eitt skýrt dæmi um brot:

50 milljörðum í hlutafé í Kaupþing er haldið hjá starfsmönnum þrátt fyrir ónægar tryggingar, vanskil o.s.frv. bara til þess eins að blekkja hinn almenna fjárfestir um rétt gengi.

Þ.e. gengi bankans var haldið upp með falsi.

Annað dæmi:

Er það löglegt að framleiða eigið fé með viðskiptavild? Selja endalaust sama hlutinn á milli fyrirtækja í eigu sömu aðila þar til eigið fé orðið ásættanlegt? Hver lánaði út á þetta? Hver endurskoðaði þetta og samþykkti og á hvað forsendum. Hver er ábyrgur? 

 


mbl.is Verður alltaf íslensk rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríð

Það má öllum vera ljóst að við erum í stríði við Breta og Hollendinga. Þeir þvælast allsstaðar fyrir okkur til þess að reyna að knésetja okkur. Þetta eitt sýnir hversu hættulegt tal það er að fara í ESB bara sí svona eins og margir hafa viljað. Þetta eru ekki vinveittar þjóðir okkur.

Eftir fall Berlínarmúrsins eigum við ekkert bakland lengur. Við verðum að horfast í augu við það að við erum nánast ein á báti.

Nú er tíminn til að þakka fyrir okkur og segja okkur úr NATO strax. Fækka sendiráðum, láta okkur nægja að hafa svona um það bil 5 sendiráð í helstu borgum heims. Skera niður ríkisstofnanir hratt til að spara útgjöld. Setja takmarkanir á gjaldeyri við nauðsynjar þar til við höfum náð jafnvægi.

IMF eigum við að gleyma. Við látum ekki knésetja okkur. Áfram Ísland.


mbl.is Þingmenn EFTA hafa áhyggjur af Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Núna fyrst

Loksins eruð þið að vakna. Hef aldrei skilið sofanda hátt þingsins. Sorglegt að það þurfi svona hrun svo þið vaknið þingmenn. Þið eigið að vita að ykkar er ábyrðin!
mbl.is Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Austur fyrir Háaleitisbraut

Þetta eru góðar fréttir og þá hægt að stækka Miklatún. Það er nýjung að græn svæði séu stækkuð í Reykjavík en ekki skorin niður.

Best væri að göngin næðu austur fyrir Háaleitisbrautar gatnamótin og bæta þannig umhverfið enn meir. Hluta mætti nota sem byggingarland sem myndi koma á móti kostnaðinum.


mbl.is Miklabraut í stokk að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umboðssvik Gunnars

Hvað er þessi maður að gera í stjórn Kaupþings?

Hversvegna sagði þessi maður ekki af sér?

Hversvegna segir hann ekki af sér sem formaður VR?

Ef hann gerir það ekki sjálfur á að reka hann. Hann hefur tekið þátt í að blekkja alla þá sem keyptu bréf í bankanum.

Hvar er tilkynningin til Kauphallarinnar.

Maðurinn er siðblindur!


mbl.is Ekki hægt að taka aðra ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfskuldarábyrgð

Það er nauðsynlegt að skoða hverjir voru krafðir um sjálfskuldarábyrgð og hverjir ekki í bankakerfinu, sem voru með áþekkar tryggingar. Hverjir voru vildarvinir og hverjir ekki? Þetta á bæði við um bankamenn og viðskiptavini. Þegar það hefur verið gert mun meiri skítur fljóta upp.
mbl.is Bankamenn fá ekki sérmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignaraðild

Það er eins með fjölmiðla og bankana hér. Það þarf dreifða eignaraðild og þá á ég ekki við nokkur skúffufyrirtæki heldur hóp einstaklinga. Þetta á jafnt við um ríkisfjölmiðilinn, sem stjórnmálamenn geta misnotað og einkafjölmiðil sem eigandinn getur misnotað.

Dreifð eignaraðild er lykillinn.


mbl.is Rosabaugur Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tori

Höfundur

Tori
Tori
Íslendingur.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband