Vatnsmýrin

Hver á Vatnsmýrina? Var hún ekki tekin eignarnámi? Þetta er mál allra landsmanna, sem höfuðborgin þjónar. Fégráðugir borgarfulltrúar ættu að athuga þetta.

Reykjavíkurflugvöllur á að vera á sínum stað. Hringbrautina átti að leggja í stokk og á. Tengja grænusvæðin frá Elliðaárdalnum í Hljómskálagarðinn. Sá einhvern tíma teikningu fyrir golfvöll vestan við Valsheimilið. Góð hugmynd.


mbl.is 64% Reykvíkinga vilja flug í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðalaus / n

Nauðsynlegt að horfast í augu við raunveruleikann.

1. Aðrar þjóðir einnig í vandræðum, auðvelt að pína okkur og hafa athyglina þar..

2. Festa verðtrygginguna miðað við janúar 2008. Þegar mesta umrótið afstaðið hægt að tengja hana á ný ef menn vilja.

3. Festa gengisvístöluna miðað við janúar 2008 hvað erlend lán viðkemur og snúa yfir í innlend.

4. Sjálfsagt auðveldast að taka upp Kanada dollar eða USD.

5. Opna betur fyrir innflutning frá Norður Ameríku. Þaðan ódýrustu matvælin.

Það er nauðsynlegt að koma í veg fyrir sem flest gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja hér heima.

Áfram Ísland.


mbl.is Fáum ekki lán nema Icesave deila leysist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðtal

Það er auðvelt að leysa þetta. Björgvin sagði í sjónvarpsviðtali "sunnudaginn langa" fyrir framan ráðherrabústaðinn að hann hefði vitað um þetta vandamál í rúmt ár!

Ætli að FME hafi ekki vitað þetta. þar með talið stjórnarformaðurinn.Jón Sigurðsson.

Það sorglega við þetta allt er að þeir sváfu allir á vaktinni.

 


mbl.is FME: Upplýsti ekki ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

007

http://www.youtube.com/watch?v=YoIJPwfsbqg

Þarna sér maður hvernig IMF vann/vinnur á Jamaica. Einnig áhugavert að sjá Quantum of Solance, eru Quantum samtökin IMF?

Menn muna jú kannski þegar vatnsveitan í Bolivíu var seld..........


mbl.is Styðja illa Íslendinga hjá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bréfið

Ágætt viðtal við Sigurð Einarsson. Hann nefnir að hann hafi sent Geir Haarde bréf með afriti á Davíð Oddsson. Þar segist hann hafa varað við framhaldinu. Má ekki birta þetta bréf. Nauðsynlegt að nú þegar tilvist þess er ljós að það sé birt.
mbl.is Sigurður: Lenti illilega saman við Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákvörðun

Björgvin,

1. Taktu vísitöluna úr sambandi miðað við janúar 2008 og settu hana svo í samband aftur þegar hremmingarnar eru yfirgegnar.

2. Festu gengisvísitöluna miðað við janúar 2008 og láttu skuldbreyta yfir í íslensk krónulán miðað við sömu dagsetningu.

Einfalt og við þetta væri hægt að bjarga atvinnu fjölda fólks og fyrirtækjum frá gjaldþroti. 


Ávörðun

Björgvin,

1. Taktu vísitöluna úr sambandi miðað við janúar 2008 og settu hana svo í samband aftur þegar hremmingarnar eru yfirgegnar.

2. Festu gengisvísitöluna miðað við janúar 2008 og láttu skuldbreyta yfir í íslensk krónulán miðað við sömu dagsetningu.

Einfalt og við þetta væri hægt að bjarga atvinnu fjölda fólks og fyrirtækjum frá gjaldþroti. 

 


Sjúklingurinn og fíflin

Það er eins gott að þetta fólk, stjórnmálamenn og vissir embættismenn, séu ekki læknar. Því að orðavalið, sem það tileinkar sér um grafalvarleg mál lýsir best hroka þess og yfirlæti. Hef lesið spár margra hagfræðinga um hvernig framtíðin lítur út í það og það skiptið, þvílíka vitleysa og della.

Það er nú einu sinni þannig að ef við vissum framtíðina, hvað væri gaman þá. Getum við ekki alveg eins sagt að á fyrri hluta næsta árs finnst olía og jafnvel gas norðaustur af Íslandi og hvernig líta málin þá út?


mbl.is Koma „krónulufsunni" í gang á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icebank

Voru ekki skuldir Finns felldar niður þar?

Furðulegt að heyra í þessum lögmanni (BN) í fréttum. Hafa þessa framvirku samninga í vanskilum, án trygginga nema í bréfunum sjálfum o.s.frv. getur varla verið það sem öðrum var boðið uppá. Með því að hafa 50 milljarða í nafni starfsmanna er hreinlega verið að hafa áhrif á gengið á bankanum til hækkunar á sínum tíma og blekkja fjárfesta. Get ekki séð hvernig þetta sé löglegt.


mbl.is Vildu fella ákvörðun stjórnar niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IMF út

Ánægður með svör Geirs. Megum ekki láta kúga okkur. Þar að auki er ég ekki viss um að IMF hafi nokkuð að bjóða í ráðgjöf. Eru þetta ekki bara gamaldags töffarar?

Yrði mjög feginn því að IMF kæmi ekki. Er hlynntur því að láta reyna á lán frá Rússum, ef ekki það verðum við bara að berjast lengur eða þar til við náum utan um þetta.

Mikilvægast er að festa gengisvísitölu krónunnar, t.d. í janúar gildi og taka verðtrygginguna úr sambandi frá sama tíma. Það mætti auka greiðslur fólks í lífeyrissjóð um 2 % einnig. Gjaldeyrishöft svo í 2 ár eða lengur, en vonandi nægir skemmri tími.

Það verður að gera allt til að koma í veg fyrir sem flest gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja. Það verður okkur enn dýrara.


mbl.is Við hættum frekar við lánið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tori

Höfundur

Tori
Tori
Íslendingur.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 269

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband