Færsluflokkur: Spaugilegt

Rússar alvarlegir

Við skulum átta okkur á því að sjálfsagt er búið að reyna að tala Rússa frá láni til okkar. IMF að stinga uppá sameiginlegu láni til að reyna að ná tökum á okkur o.s.frv.

Ef Rússar vilja hinsvegar koma okkur í vandræði þá neita þeir okkur um lán á einhverjum forsendum sem mun þýða að við munum sitja undir afarkostum IMF o.s.frv. Þetta er ekki skemmtileg staða en svona er þetta.

 


mbl.is Viðræður við Rússa hefjast í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enga mismunun

Ef annar hvor þessara aðila fá að kaupa skuldir Baugs á einhverjum afsláttar kjörum þá er rétt að aðrir fá einnig að kaupa skuldir sínar með sömu afföllum.

95% afsláttur í lagi ef allir sitja við sama borð. Er það stóri bandaríski fjárfestingasjóðurinn sem ef til vill setti þjóðina á hausinn? Ekki mín hugmynd, heldur Paul Krugman´s, að einhver slíkur hafi farið á móti okkur.


mbl.is Green vildi kaupa skuldir Baugs með 95% afslætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja Ísland

Treysti Sverri Hauki til að gefa ekki þumlung eftir við Bretana. Gordon Brown gróf þessa gröf og því ræða þeir þetta ekki við hann landar hans.

Sverrir nú ert þú að semja fyrir nýtt land sem þú jafnvel hefur ekki kynnst ef þú hefur ekki verið hér heima síðustu daga. Það eiga margir um sárt að binda. Þeir siðblindu halda þó sínu striki eins og sést af fréttum.


mbl.is Sparifjáreigendur funda með sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi

Vonandi nær Baugur að endurfjármagna sig, but please ekki reyna að láta kaupa skuldirnar á nokkur prósent og snýta þjóðinni,þ.e.a.s. láta bankann sitja eftir með enn meiri ónýtar skuldir. Finnst eigendunum að þjóðin eigi það inni hjá þeim sem hefur verslað af mikilli tryggð hjá þeim hér heima (í bonus,hagkup og 1011) og jafnvel á ferðalögum í Bretlandi.

Er ekki hluti af endurreisninni að geta gengið beinn í baki?


mbl.is Baugur ræðir við sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtu þér í Washington

En alls ekki semja við IMF. Rússarnir klára þetta með okkur. Sannur vinur er vinur í reynd.
mbl.is Bíða niðurstaðna sérfræðinga IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bresk stjórnvöld

Er sammála öllum sem vilja taka á breskum stjórnvöldum vegna framgöngu þeirra gagnvart okkur. Nú nota þeir IMF til að reyna að þvinga okkur til samninga sem ná lengra en skuldbindingar okkar vegna EES samningsins.

Það er hálf sorglegt að sjá hve stutt er í nýlenduþjóðar tilburði hjá Gordon Brown. Ég vona svo sannarlega að forsetinn beiti sér. Ætli Gordon Brown hafi ekki eyðilagt London sem fjármálamiðstöð? Menn sækja ekki í það að vera nefndir hryðjuverkamenn. Né að það sé bara ráðist á næsta banka ef svo ber undir.  


mbl.is Ólafur Ragnar: Ótrúleg ósanngirni breskra stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IMF - alls ekki

Ekki er ég hissa á því að IMF hafi áhyggjur. Því það mun koma í ljós að lán frá Rússum verður á viðskiptalegum forsendum. Vonandi verður IMF ekki búið að þvinga Rússa á einhvern hátt svo jafnvel þeir geti ekki aðstoðað okkur.

Allir vita sögu IMF, því miður hörmungarsaga. Svo segja menn að við fáum öðruvísi meðhöndlun af því að við erum þróað efnahagskerfi. Dream on!


mbl.is Fundað stíft með IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíminn skiptir máli

Því lengra sem líður því meiri verður skaðinn hvað eignir bankana við kemur. Við verðum að drífa í að stefna Bretum og fá Kaupþing afhent ásamt skaðabótum.

Það myndi hjálpa mikið ef næðist að endurreisa Kaupþing hér og erlendis.Þeir eru stór atvinnurekandi og jafnframt gerðu þeir hlutina rétt. Við erum ekki að borga fyrir þá. Þetta voru dótturfélög en ekki útibú.


mbl.is Ríkið íhugar að fara í mál vegna Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EES

Það er bara verið að standa við EES samninginn af okkar hálfu. Ekki verið að semja um eitt eða neitt.
mbl.is Ábyrgjumst 600 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tori

Höfundur

Tori
Tori
Íslendingur.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband